Búið að aflétta rýmingu í Útkinn í Þingeyjarsveit

Búið er að aflétta rýmingu í Útkinn í Þingeyjarsveit og er íbúum því heimilt að halda heim til sín á ný. Sérfræðingar veðurstofu hafa skoðað aðstæður á svæðinu í dag og ljóst að verulega hefur dregið úr skriðuhættu. Vegurinn um Útkinn er þó enn lokaður fyrir almennri umferð enda hætta á að blautur jarðvegur renni inn á veginn.

Íbúum er ráðlagt frá því að fara um veginn í myrkri og munu fá fylgd björgunarsveita heim til sín kjósi þeir að snúa til sín heima í kvöld.

Hættustig er enn í gildi á svæðinu en skilgreining þess er að heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.