Eldgos hófst við fjallið Litla Hrút á Reykjanesskaga klukkan 16:40 í gær.

Frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum:

Eldgos hófst við fjallið Litla Hrút á Reykjanesskaga klukkan 16:40 í gær.

Opnað hefur verið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum.

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið, sjá mynd. Veðurstofa Íslands hefur gefið út hættukort af svæðinu – sjá mynd. Ganga þarf um 20 km. leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, nesti sig og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi. Sjá jafnframt upplýsingar á:
www.safetravel.is
www.almannavarnir.is
www.vedur.is
Þá má benda á helstu fjölmiðla sem hafa verið með mjög upplýsandi og með góðan fréttaflutning af gosinu.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Norðlæg átt, 5-10 m/s, 8-13 á morgun. Gasmengunin berst því til suðurs og gæti hennar orðið vart í m.a. Grindavík og á Suðurstandarvegi.
Mun hægari vindur um tíma í nótt. Gasmengun gæti dreifst víða kringum upptakasvæðið í fyrramálið.