Almannavarnastig lækkað

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna eldgoss í Geldingadölum úr hættustigi niður í óvissustig.

Virkni í gígnum í Geldingadölum hefur legið niðri síðustu fjórar vikur og óróamælingar hafa verið í samræmi við það.  Skjálftavirkni jókst sunnan Keilis í byrjun október, en hefur gengið niður síðustu daga.  Enn er fylgst vel með svæðinu með tilliti til aukinnar skjálftavirkni, óróa og landbreytinga.  Áfram má búast við hættum á svæðinu og er fólki ráðlagt frá því að ganga á hraunbreiðunni eða reyna að nálgast gíginn. 

Þann 20. mars sl. var almannavarnastigið lækkað frá neyðarstigi niður á hættustig.