Fjórtán einstaklingar hafa verið greindir með COVID -19 á Íslandi

Í dag hafa fimm tilfelli af COVID-19 sjúkdómum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Samtals hafa því fjórtán einstaklingar á fimmtugs og sextugsaldri verið greindir hér á landi. Hafa þau öll smitast erlendis. Fólkið er ekki alvarlega veikt. Sex þeirra komu í flugi frá Verona á Norður Ítalíu og átta í flugi frá Munchen í Þýskalandi, sem voru að koma frá Austurríki og Ítalíu. Fólkið er nú í einangrun. Sá sem fyrst smitaðist er útskrifaður af Landspítala og er nú heima í sóttkví.

Smitrannsóknateymi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sóttvarnalæknis er að störfum. Samtals hafa þau haft samband við um 300 einstaklinga síðastliðna daga.

Í dag voru 29 sýni rannsökuð á Landspítala, þar af reyndust fimm fyrrnefnd tilfelli jákvæð. Frá upphafi hafa um 180 sýni verið rannsökuð. Í kringum 300 manns eru í sóttkví á landinu öllu.

Upplýsingafundur fyrir fjölmiðla

Á upplýsingafundi Samhæfingarstöðvar fyrir fjölmiðla fjallaði Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítala um COVID 19 veiruna, einkenni hennar og stöðuna í dag. Már hvatti almenning til að fylgja almennum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Hann lýsti einkennum kórónaveirunnar í samanburði við hina árlegu inflúensu. Einkennin eru ekki ólík en það er til bóluefni og meðferðarmöguleikar þegar kemur að inflúensu. Kórónaveiran er ný veira og beita þarf einangrun og sóttkví þar til búið verður að þróa bóluefni. Um 80 prósent þeirra sem greinast með COVID-19 fá væg einkenni, um 15 prósent verða veik með hita og einkenni hliðstæð inflúensu en um 5% veikjast alvarlega. Veiran getur lifað á yfirborði hluta í 1-9 daga og er því mikilvægt að gæta vel að almennu hreinlæti.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra útskýrði langtímaviðbrögð stjórnvalda við COVID-19. Nauðsynlegt er að horfa af yfirvegun fram i tímann. Við erum í upphitun fyrir verkefni næstu mánaða.

Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur hjá Rauða krossinum fjallaði um nauðsyn þess að fólk hlúi að andlegri líðan sinni og sinna nánustu. Umfjöllun getur valdið kvíða og er því mikilvægt að foreldrar sýni sérstaka aðgát í návist barna.  Varast sögusagnir sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Lifa eðlilegu lífi og halda ró sinni við þessar óvenjulegu aðstæður.