Fréttatilkynning frá Veðurstofu Íslands

Fréttatilkynning frá Veðurstofu Íslands, 16. apríl 2017.

 

Í ljósi þess að von er á talsverðri umferð um vegi landsins í lok pákahelgarinnar, vill Veðurstofa Íslands vekja athygli á mjög slæmu veðri sem spáð er á morgun, mánudaginn 17. apríl. Búast má við að vindhraði nái víða 20-25 m/s á suðvestan- og vestanverðu landinu um og eftir hádegi á morgun, sums staðar 28 m/s við fjöll ásamt mjög hvössum vindhviðum. Veðrinu fylgir talsverð úrkoma, fyrst snjókoma en síðan slydda eða rigning. Viðbúið er að skyggni verði slæmt og ferðaveður sums staðar mjög slæmt.

Á Hellisheiði fer að snjóa kringum hádegið og fljótlega eftir það má búast við lélegu skyggni. Fer líklega ekki yfir í slyddu eða rigningu fyrr en undir kvöld.  Búist er við mjög hvössum vindhviðum á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og víða á norðanverðu Snæfellsnesi..

Veðrið gengur til norðausturs yfir land og hvessir mikið á Steingrísfjarðarheiði og Holtavörðuheiði síðdegis með skafrenningi og lélegu skyggni. Snýst í mun hægari suðvestanátt fyrst vestanlands seint annað kvöld.

Vindakort af http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/#teg=vindur sem sýnir meðalvindhraða kl. 18 á morgun, 17. apríl.

Upplýsingar um færð og lokanir á vegum má finna  vef Vegagerðarinnar