Fréttatilkynning vegna COVID-19 – 29.02.2020

Ekkert nýtt smit hefur verið staðfest frá því að íslenskur karlmaður greindist með veiruna í gær. Nú hafa alls 85 sýni verið rannsökuð, þar af 24 í dag, og ekkert þeirra hefur reynst jákvætt fyrir nýju kórónaveirunni.

Í gær lýsti almannavarnadeild ríkislögreglustjóra yfir hættustigi vegna COVID-19 í samvinnu við sóttvarnalækni og er sem fyrr unnið samkvæmt Landsáætlun um heimsfaraldur.

Heilsa mannsins sem greindist með veiruna í gær er góð. Hann sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms og er nú í einangrun á Landspítala. Eftir að upp komst um smitið hófst umfangsmikil vinna af hálfu sóttvarnalæknis, ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að rekja mögulegar smitleiðir. Sú vinna leiddi til þess að 49 manns var ráðlagt að fara í sóttkví. Í dag er því 81 einstaklingur í sóttkví á landinu öllu.

Mikið álag var á síma 1700 eftir að greint var frá fyrsta staðfesta smitinu á Íslandi um miðjan dag í gær. Einhver röskun varð á símsvörun í gegnum 1700 vegna þessa en gripið hefur verið til aðgerða til að koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Að auki hafa almannavarnir og sóttvarnalæknir unnið að því að samhæfa, styrkja og bæta enn frekar rakningu smita.

Um klukkan 17:00 lendir flugvél Icelandair í Keflavík með farþega sem dvalið hafa á Norður-Ítalíu. Um borð eru 180 Íslendingar. Þessir einstaklingar munu fá upplýsingar frá áhöfn flugvélarinnar um almenna smitgát ásamt upplýsingum um símanúmerið 1700 sem fólkinu er ráðlagt að hringja í finni það fyrir einkennum (hósti, hiti, beinverkir, mæði). Að auki munu lögreglumenn og heilbrigðisstarfsmenn taka á móti fólkinu til að veita þeim frekari ráðleggingar um framhaldið.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir lýsa yfir áhyggjum vegna yfirstandandi og yfirvofandi verkföllum. Þetta eru aðgerðir sem geta haft áhrif á viðkvæmustu hópa samfélagsins eins og fólk á hjúkrunarheimilum. Þá getur takmörkuð sorphirða jafnframt dregið úr áhrifamætti sóttvarnaaðgerða.

Svo gæti farið að ferðamenn sem ekki hafa greiðan aðgang að húsnæði verði útsettir fyrir smiti. Til að geta tekið á móti slíkum hópi hafa Sjúkratryggingar Íslands gengið til samninga við Fosshótelið Lind við Rauðarárstíg 8 í Reykjavík. Þar eru 70 herbergi sem hægt verður að nota fyrir sóttkví. Rauði krossinn og heilbrigðisþjónustan munu í sameiningu sinna þeim sem þar gætu þurft að dvelja.

Að óbreyttu verður næsti upplýsingafundur almannavarna og sóttvarnalæknis mánudaginn 2. mars.