Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á
að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Í morgun gaf Veðurstofa Íslands út gula veðurviðvörun fyrir landið allt á fimmtudaginn vegna
suðaustan hríðarbyls. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags og gildir til
klukkan 18 sama dag.
Viðvörunin hefur nú verið uppfærð og í fyrramálið verða gerðar viðvaranir fyrir hvert spásvæði út
frá því hvernig veðurspá er þar og fyrir hvaða tíma viðvörunin gildir.
Núverandi texti er svohljóðandi:
Viðvörun fyrir allt Ísland – Suðaustan hríðarbylur (Gult ástand)
26 mar. kl. 05:00 – 18:00
Suðaustan stormur eða rok, 18-28 m/s með talsverðri snjókomu eða slyddu gengur norðaustur
yfir landið á fimmtudag. Einnig má búast við mjög hvössum viðhviðum við fjöll, 35 – 45 m/s.
Veðrið fer að ganga niður suðvestantil á landinu um hádegi, en norðaustantil á landinu um
kvöldið.
Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á
að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.