Fundur vísindaráðs almannavarna 7.12.2017

Í dag var haldinn fundur í vísindaráði almannavarna um Öræfajökul. Niðurstöður fundarins eru eftirfarandi:

  • Á síðustu viku hefur smáskjálftum sem mælst hafa í Öræfajökli fjölgað. Í síðustu viku mældust þar 160 smáskjálftar. Svo margir skjálftar hafa ekki mælst þar fyrr.
  • Jarðskjálftarnir eru aðallega dreifðir í og við öskjuna í efstu 10 km jarðskorpunnar.
  • Nýjustu mælingar á sigkatlinum í öskju Öræfajökuls sýna að hann heldur áfram að dýpka og stækka í samræmi við viðvarandi aukna jarðhitavirkni og að vatn renni frá katlinum.
  • Mælingar í Skaftafellsá, Virkisá, Kotá og Kvíá sýna óverulegar breytingar undanfarnar vikur. Mælingar á leiðni og efnasamsetningu sýna að jarðhitavatn kemur fram í Kvíá.
  • Frekari túlkun á mælingum á jarðskorpubreytingum síðustu ára sýnir smávægilegar færslur við suðurjaðar jökulsins.
  • Atburðarás og mælingar á svæðinu benda til minniháttar kvikuinnskots á um 2-6 km dýpi undir fjallinu.
  • Á síðustu vikum hefur vöktun við Öræfajökul verið aukin til muna, bætt hefur verið við vatnamælum, jarðskjálftamælum og síritandi GPS tæki auk nokkurra vefmyndavéla. Rannsóknir á vettvangi hafa verið auknar.