Fundur vísindaráðs almannavarna

Jarðvísindamenn hittust á vísindaráðsfundi almannavarna í dag og fóru yfir stöðu mála vegna landriss og jarðskjálftavirkni sem hófst seinni part janúar við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga.

Gasmælingar voru gerðar við Eldvörp í síðustu viku og mældust hættulega lág gildi súrefnis innan hellismunna.  Almennt getur verið hættulegt að fara inní hella á jarðhitasvæðum og fólk beðið að sýna aðgát í slíkum ferðum.  

Dregið hefur verulega úr jarðskjálftavirkni við Þorbjörn síðustu daga.  Ekkert landris mælist lengur og líklegasta skýringin á þessari hegðun er að innflæði kviku sé lokið í bili. 

Vísbendingar eru um lítilsháttar sig frá miðjum febrúar en of snemmt er að túlka mælingarnar og því mikilvægt að fylgjast áfram vel með atburðarrásinni.  Áfram er í gildi óvissustig almannavarna sem lýst var yfir 26. Janúar 2020.

Næsti fundur vísindaráðsins verður haldinn 12 mars.

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, HS-Orku Isavia ANS og Umhverfisstofnun.