Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík liggja nú fyrir. Matið tekur meðal annars til daglegs öryggis íbúa og þeirra sem starfa í bænum, samfellu skólahalds, velferðar barna og öryggis húsnæðis vegna áframhaldandi náttúruvár á svæðinu.
Niðurstaðan er sú að aðstæður í Grindavík séu sambærilegar við önnur íslensk byggðarlög sem búa við langvarandi náttúruvá, að því gefnu að mikilvægar öryggisráðstafanir, vöktun og viðbúnaður haldist virkur. Þá er talið að daglegt öryggi fólks sem dvelur eða starfar í Grindavík sé ásættanlegt, sem og öryggi við rýmingar og endurkomu.
Frá haustinu 2023 hafa orðið níu eldgos í nágrenni Grindavíkur og bærinn verið rýmdur tíu sinnum. Þrátt fyrir að óvissa ríki enn um framhald jarðhræringa hefur umfangsmikið starf verið unnið við að efla öryggi samfélagsins. Þar má nefna stöðuga vöktun og hættumat, uppbyggingu og viðhald varnargarða, vöktun hættusvæða og sprungna, auk öflugs viðbúnaðar við mögulegar rýmingar með skömmum fyrirvara.
Sérstök áhersla hefur jafnframt verið lögð á stuðning við börn og aðra viðkvæma hópa. Markmiðið er að tryggja samfellu í skólastarfi, íþrótta- og tómstundastarfi og veita viðeigandi stuðning ef til rýmingar kemur.
Áhættumatið var unnið af þverfaglegum hópi sérfræðinga, stjórnvalda og fulltrúa samfélagsins í Grindavík. Fram undan er frekari vinna við að þróa matið, fylgjast með virkni þeirra forsendna sem það byggir á og endurmeta stöðuna reglulega í ljósi þróunar á svæðinu.
Hér má lesa nánar um niðurstöður áhættumatsins, forsendur þess og næstu skref.

Áhættumatið gildir fyrir byggð svæði í Grindavík innan varnargarða
