Hættustig á Eskifirði vegna skriðuhættu

Tilkynning frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur lýst yfir hættustigi á Eskifirði vegna skriðuhættu.

Sprungur í gamla Oddskarðsveginum, ofan Eskifjarðar hafa stækkað í dag. Veðurstofan mælist til þess að Botnabraut, Hátún, Helgafell, Lambeyrarbraut, Hólsvegur og Strandgata verði rýmdar. Íbúar í viðkomandi götum eru beðnir um að skrá sig í fjöldahjálparstöð Rauða kross Íslands í kirkju- og menningarmiðstöðinni að Dalbraut 2 á Eskifirði eða að hringja í síma 1717.

English translation

Polish translation