Hættustig Almannavarna vegna hættu á heitavatnsskorti

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hafa ákveðið að fara á hættustig Almannavarna vegna hættu á heitavatnsskorti á Reykjanesi.

Almannavarnir biðja almenning um að gefa viðbragðsaðilum svigrúm í þeirri vinnu sem núna fer fram á staðnum. Almannavarnir biðla til húseigenda á Reykjanesi að bíða með að hefja rafkyndingu í lengstu lög. Einnig eru íbúar og atvinnulíf beðið um að lækka í hitakerfum í húsum og vera ekki að nota heitt vatn til baða í sturtu, baðkörum eða heitum pottum.

Á vef HS Veitna eru mikilvæg skilaboð til íbúa á Reykjanesi:

Hraunflæðið rennur nú í átt að stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ. Fari hraunflæði yfir lögnina er útlit fyrir að sú sviðsmynd raungerist að ekkert heitt vatn frá Svartsengi með þeim afleiðingum að heitavatnslaust verður í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Eins og hraðinn er á hraunflæðinu núna gæti það gerst á næstu klukkustundum.

Til að bregðast við slíkum atburði hefur verið unnið að lagningu nýrrar heitavatnslagnar í jörðu á þessu svæði. Búið er að leggja um 500 metra langan kafla þar sem ætlunin er að tengja ef gamla lögnin eyðileggst en það getur hins vegar tekið einhverja daga að koma nýju lögninni í gagnið.

Áríðandi skilaboð til íbúa á Suðurnesjum | HS Veitur