Hættustig almannavarna vegna skriðuhættu er enn í gildi á Seyðisfirði og óvissustig er enn í gildi á Austurlandi

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:

Hættustigi almannavarna aflýst og rýmingu aflétt á Eskifirði

Neyðarstig almannavarna fært niður í hættustig á Seyðisfirði – Aflétting rýmingar að hluta.

Óvissustig almannavarna vegna skriðuhættu er enn í gildi á Austurlandi.

Eskifjörður:

Að höfðu samráði við ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands var rýmingu á Eskifirði aflétt í dag.

Opinn rafrænn íbúafundur er fyrirhugaður á þriðjudag með lögreglustjóra, bæjarstjóra Fjarðabyggðar og fulltrúa Veðurstofu. Upplýsingar um tímasetningu verða sendar síðar.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi, hefur aflýst hættustigi almannavarna og aflétt rýmingu á Eskifirði. Fjöldahjálparstöð Rauða kross Íslands í Eskifjarðarkirkju hefur verið lokað.


Seyðisfjörður:
Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands ásamt samstarfsaðilum, hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Enn er hætta á skriðuföllum á ákveðnum svæðum og verða þau áfram rýmd. Þeir íbúar sem búa utan þeirra svæða er heimilt að snúa aftur. Svæðin má sjá á meðfylgjandi korti. 

Alls þurftu 581 íbúi að yfirgefa Seyðisfjörð vegna aðgerðanna. Nú hafa 305 íbúar farið aftur inn á þau svæði sem eru ekki skilgreind sem hættusvæði.

Þeir íbúar sem ekki geta snúið til síns heima geta fengið upplýsingar í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum. 

Fljótlega verður opnuð þjónustumiðstöð almannavarna fyrir íbúa á Seyðisfirði. Samkvæmt lögum um almannavarnir er ríkislögreglustjóra heimilt, þegar hættu ber að garði eða hún um garð gengin, að stofna tímabundið þjónustumiðstöð vegna tiltekinnar hættu eða hættuástands.

Verkefni þjónustumiðstöðvar felast meðal annars í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og hin tiltekna hætta hefur haft önnur bein áhrif á. Auk þess annast þjónustumiðstöðin, í samvinnu við hlutaðeigandi yfirvöld og stofnanir, samskipti við fjölmiðla vegna aðgerða sem gripið er til hverju sinni.

Næsti samráðsfundur almannavarna, viðbragðsaðila, veðurstofu og stofnanna verður kl 10 í fyrramálið.