Hættustig Almannavarna vegna veðurs á Austurlandi.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi lýsa yfir hættustigi Almannavarna vegna veðurs,  á morgun sunnudaginn 25. september.

Fyrr í dag var óvissustigi lýst yfir á svæðinu en hefur nú verið breytt í hættustig.

Fólk sem hugar að ferðalögum á þessum landshlutum er hvatt til þess að fylgjast vel með veðurspám á www.vedur.is og upplýsingar um ástand á vegum á www.vegagerdin.is