Hættustig enn í gildi fyrir Útkinn

Eins og kunnugt er þá er hættustig enn í gildi fyrir Útkinn vegna úrkomu og aurskriðna og vegurinn þangað út eftir lokaður fyrir almennri umferð.  

Í kvöld og nótt á að rigna á svæðinu en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands þá verður það líklega minna en spáð var í fyrstu og er það gott.

Þrátt fyrir það þá verður hættustig í gildi áfram og vegurinn lokaður til morguns, föstudags.  Íbúum er heimilt að dvelja á heimilum sínum en þurfi þeir að fara um veginn er æskilegt að gera það í björtu.

Íbúar eru hvattir til að hafa samband við lögregluna ef þeir verða áskynja um einhverjar breytingar í hlíðunum eða sjá nýjar skriður falla.

Staðan verður endurmetin í fyrramálið.