Hættustig vegna úrkomu og skriðuhættu í Kinn og Útkinn. Óvissustig vegna úrkomu á Tröllaskaga.

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýsir yfir óvissustigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra. 

Þá er einnig lýst yfir hættustigi í Kinn og Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu.   Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma eftirtalda bæi í Útkinn: Björg, Ófeigsstaði, Rangá, Engihlíð og Þóroddsstaði.

Veðurstofa Íslands hefur sett út gula viðvörun vegna úrkomu á Norðurlandi eystra og gildir hún til hádegis á morgun, sunnudaginn 3. október.

Mikil úrkoma hefur verið á Norðurlandi í dag og mun svo vera áfram til morguns.  Veginum í Útkinn frá gatnamótum við Norðausturveg hefur verið lokað vegna aurskriðna sem þar hafa fallið. 

Borist hafa upplýsingar um grjóthrun á Siglufjarðarvegi í Almenningum vestan Siglufjarðar og eru vegfarendur beðnir um að hafa varann á séu þeir á leið þar um.