Hættustigi aflétt á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum

Hættustigi vegna óveðurs á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum hefur verið aflétt og er óvissustig þá í gildi á öllu landinu og verður staðan endurmetin eftir hádegið. Búið er að aflétta óvíssustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Austurlandi og Mið-Norðurlandi. Enn er óvissustig í gildi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu fyrir sunnan- og norðanverða Vestfirði og er mjög hvasst þar. Lokanir á vegum á Vestfjörðum verða endurskoðaðar um hádegi þegar hvassviðrinu hefur slotað. Sama á við um Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð, leiðina milli Súðavíkur og Ísafjarðar, en hún verður ekki skoðuð m.t.t. opnunar fyrr en birtir og hægt verður að sjá upp í híðar. Nánari upplýsingar um þetta er að finna á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og eins í upplýsingasíma þeirra 1777. Greiðfært er víða suðvestanlands, þó eru  hálkublettir og þoka á Sandskeiði og Hellisheiði. Hálkublettir eru víða á Vesturlandi og óveður. Lokað um Bröttubrekku Á Austurlandi er flughálka á þeim leiðum sem eru opnar nema á Fagradal og Oddskarði en þar er hálka. Unnið er að opnun á Fjarðarheiði
Áfram verður víða stormur eða rok framan af degi. Lægir svo um munar síðdegis þegar óveðurslægðin fjarlægist landið.