Íbúafundir í Öxarfirði og á Húsavík á morgun

Á morgun 24. febrúar verða tveir almennir upplýsingafundir fyrir íbúa, annars vegar í Lundi í Öxarfirði klukkan 17:00 og hins vegar á Húsavík klukkan 20:00, vegna jarðhræringanna í Bárðarbungu og eldgossins í Holuhrauni. Fundirnir eru í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Í umdæminu hefur komið fyrir að mælst hefur mikil SO2 gasmengun frá eldggosinu í Holuhrauni og má búast við auknum áhrifum gass í vor og sumar miðað við spákortin. Á fundunum munu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun, Sóttvarnalækni og Jarðvísindastofnun fjalla um stöðuna á eldgosinu og fara yfir jarðhræringarnar í Bárðarbungu. Þá verða til umræðu áhrif og viðbrögð við gasmengun, hugsanlegt öskufall og flóð vegna eldgoss undir jökli og önnur tengd mál.

Fundirnir verða í Lundi Öxarfirði klukkan 17:00 og í Framsýnarsalnum á Húsavík klukkan 20:00

Íbúar eru hvattir til að koma á fundina og kynna sér þau mál, sem þar eru til umfjöllunar.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Halla Bergþóra Björnsdóttir