Ísland tekur við formennsku í vinnuhópi CBSS um almannavarnir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tekur við formennsku í vinnuhópi Eystrasaltsráðsins (CBSS) um almannavarnir þann 1. júlí næstkomandi. Formennskan gengur á milli aðildarríkja og er nú komið að Íslandi að taka við keflinu, en síðast gegndi Ísland formennsku árið 2016-2017.

Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild, sótti fund vinnuhópsins í Gniew í Póllandi í síðustu viku þar sem formennskan var afhent með táknrænum hætti. Við það tækifæri var honum afhent bjalla við hátíðlega athöfn sem markar upphaf formennsku Íslands.


Vinnuhópurinn gegnir lykilhlutverki í almannavarnamálefnum á Eystrasaltssvæðinu, þar sem ríki vinna saman að því að efla samhæfingu viðbragða, miðla reynslu og styrkja undirbúning gagnvart fjölbreyttum ógnum.  Með formennskunni fær Ísland tækifæri til að hafa aukin áhrif á þessa þróun og miðla eigin reynslu inn í samstarfið.  

„Í ljósi stöðunnar í heiminum í dag er alþjóðlegt samstarf á sviði almannavarna mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Ísland hefur þar mikið fram að færa, bæði út frá reynslu okkar af náttúruvá og uppbyggingu viðbragðskerfa. Við finnum fyrir miklum áhuga annarra ríkja á því að koma saman, taka þátt í fundum og kynna sér það sem við höfum fram að færa,“ segir Runólfur Þórhallsson.


Áherslur Íslands á formennskuárinu munu meðal annars beinast að eflingu áfallaþols samfélaga, upplýsingagjöf til almennings, hlutverki sjálfboðaliða og nýtingu tækni í viðbrögðum við náttúruvá.


Eystrasaltsráðið (CBSS) er samstarfsvettvangur Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Evrópusambandsins á sviði öryggis og viðbragðsmála. Utanríkisráðuneytið leiðir þátttöku Íslands á ráðuneytisstigi.


Nánari upplýsingar um samstarfið má finna á vef CBSS:
https://cbss.org/cbss-bodies/civil-protection-network-2/