Yfirvöld á Grænlandi óskuðu um mitt sumar, í samstarfi við ríkisstjórn Danmerkur, eftir ráðgjafarverkefni frá Almannavarnakerfi Evrópusambandsins (UCPM). Markmið verkefnisins er að meta neyðarstjórnun á Grænlandi og getu landsins til að taka á móti og samhæfa alþjóðlega aðstoð í kjölfar hamfara.
Verkefnið er unnið undir stjórn Neyðarviðbragða- og samhæfingarmiðstöðvar Evrópusambandsins (ERCC) og er skipað sjö manna teymi sérfræðinga frá aðildarríkjum UCPM. Þar eiga sæti sérfræðingar á sviði leitar og björgunar, neyðarlækninga, náttúruvár, upplýsingastjórnunar og móttöku alþjóðlegrar aðstoðar.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sem gegnir hlutverki tengiliðar Íslands við UCPM, tilnefndi Guðbrand Örn Arnarsson, starfsmann Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem sérfræðing í leit og björgun. Tilnefning hans var samþykkt og er hann því hluti af verkefnateyminu sem vinnur að matinu á Grænlandi.
Guðbrandur hefur nú þegar hafið vinnu í verkefninu sem fram fór í Grænlandi.
Þátttaka Íslands í verkefninu endurspeglar þá þekkingu og reynslu sem íslenska almannavarnakerfið býr yfir, sem og það traust sem íslenskir sérfræðingar njóta í alþjóðlegu samstarfi.
Sjá frétt hjá Arctic Today um samstarfið.