Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á slæmum veðurhorfum fyrir suður- og vesturland á morgun,
þriðjudag:
Í nótt nálgast kröpp lægð af Grænlandshafi. Hvessir þá af suðaustri og fer að snjóa sunnan- og
vestanlands í fyrramálið. Eftir hádegi nær suðaustanáttin víða 18-23 m/s sunnan- og vestanlands
og snjóar talsvert, en skammvinn hláka kemur í kjölfarið og rignir þá um tíma við
sjávarsíðuna. Annað kvöld snýst í suðvestan 8-15 m/s með éljagangi.
Vert er að hafa í huga að í hvössum vindi og ofankomu verður skyggni mjög lítið og
líklegt að færð spillist. Sjá nánar á http://www.vedur.is/