Í heila öld hefur Landhelgisgæslan staðið vaktina á sjó, landi og úr lofti og sinnt lífsnauðsynlegu öryggis- og björgunarstarfi þegar mest hefur á reynt. Hlutverk Landhelgisgæslunnar er ómetanlegt fyrir íslenskt samfélag og öryggi okkar allra.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þakkar fyrir traust og farsælt samstarf í gegnum árin en Landhelgisgæslan er afar mikilvægur samstarfsaðili og ein af lykilstofnunum í almannavarnakerfi Íslands.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra óskar öllu starfsfólki Landhelgisgæslunnar, fyrr og nú, innilega til hamingju með þessi merku tímamót og þakkar fyrir mikilvægt framlag til öryggis lands og þjóðar í 100 ár.
