Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lokar litlu svæði næst gossprungunni í Geldingadölum

English expected // Polski oczekiwany

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka litlu svæði næst gossprungunni í Geldingadölum.  Sú ákvörðun er byggð á ályktun vísindaráðs þar sem vakin var athygli á því að stóri gígurinn geti brostið og hrauntaumurinn breytt hratt um stefnu.  Þá er einnig hætta á að önnur gossprunga opnist í grennd við gíginn, en það gerðist í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi 2010.  Lokaða svæðið er rauðmerkt á meðfylgjandi mynd.

Ennfremur er athygli vakin á öðrum hættum sem kunnu að skapast í kringum gosstöðvarnar:

  • Nýjar sprungur geta opnast í næsta nágrenni eldstöðvanna með engum fyrirvara. 
  • Glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðrinum og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.  
  • Gígarnir eru nú orðnir margra metra háir og geta verið óstöðugir, þeir geta brotnað og mikill og skyndilegur hraunstraumur úr þeim tekið nýja stefnu. 
  • Sprengingar geta orðið þar sem hraun rennur yfir vatnsmettaðan jarðveg og þeytt hrauni til allra átta. 
  • Hraunið rennur í lokaða dæld og geta lífshættulegar gastegundir safnast saman í dældum sem getur verið banvænt. Hættan eykst þegar vindur minnkar. 

Auk þess spáir Veðurstofan vondu veðri næsta sólahringinn og ferðafólk þarf að vera mjög vel útbúið ef það ætlar sér að ganga upp að gosstöðvum.  Veðrið versnar talsvert í nótt með hvassviðri, slyddu eða snjókomu.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Úlfar Lúðvíksson