Lokunum aflétt við Dettifoss

Í ljósi þess að eldgosinu í Holuhrauni er lokið og dregið hefur úr jarðhræringum í Bárðarbungu hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi Eystra ákveðið að aflétta lokunum í Jökulsárgljúfrum, norðan þjóðvegar 1. Ennþá er þó fólk hvatt til að fara um með gát og og dvelja ekki lengi niður í gljúfrunum sjálfum og vera í fjarskiptasambandi.
Áfram er í gildi lokun í kringum Holuhraun og verður ákvörðun um framhaldið tekið í byrjun næstu viku.