Mikil úrkoma með miklum leysingum og vatnavöxtum

Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun vegna vatnavaxta og hláku, en spáð er mikilli rigningu sunnan og suðaustanlands með hlýindum síðdegis á morgun, föstudaginn 13. mars fram á sunnudag 15. mars auk hlýinda um allt land. Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla sunnan og suðaustanlands og þar gæti sólarhringsafrennsli (samanlögð úrkoma og snjóbráðnun) farið vel yfir 250 mm. Varað er við vexti í ám í kring um Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnan- og suðaustanverðan Vatnajökul.
Búast má við miklum leysingum um allt land þótt úrkoma verði mest sunnan og suðaustanlands. Þar sem mikill nýlega fallinn snjór er víða um land má búast við vatnsflóðum, krapaflóðum og aurflóðum. Þannig aðstæður geta skapast á nokkurra ára fresti. Hafa skal þetta í huga áður en ferðalög eru skipulögð.
Til að fyrirbyggja vatnstjón er ráðlagt að huga vel að frárennslislögnum og niðurföllum og hreinsa ís o.þ.h. ef við á.
Frekari upplýsingar verða gefnar út á morgun föstudaginn 13. mars.