Óvissustig Almannavarna vegna slæmrar veðurspár víða um land. Mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón.

Vegna veðurs sem er fram undan víða um land þá hefur Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestmannaeyjum og Vestfjörðum ákveðið að lýsa yfir óvissustigi Almannavarna frá klukkan 08:00 á morgun, föstudaginn 25. febrúar.  Samhæfingarmiðstöð Almannavarna verður starfrækt frá klukkan 8:00 og fram eftir degi.

Eins og fram hefur komið þá hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugular viðvaranir fyrir sex spásvæði og gular viðvaranir fyrir fimm. Það mun hvessa í nótt og fyrramálið, suðaustan 18-28 m/s með skafrenningi, snjókomu og síðar talsverðri slyddu eða rigningu.

Mikilvægt er að ganga vel frá lausum munum og  hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Talsverð hætta er á foktjóni auk þess sem samgöngur geta verið erfiðar um tíma. Lokanir á vegum eru líklegar. Best er að fylgjast með lokunum vega á vef Vegagerðarinnar.

Almannavarnir halda áfram að fylgjast vel með og miðla upplýsingum til fjölmiðla um stöðuna.

————————–
Hér er hægt að fylgjast með framvindu veðursins á vef Veðurstofu Íslands
Hér er hægt að fylgast með vegum og lokunum hjá Vegagerðinni.