Óvissustig Almannavarna vegna netárása aflétt

Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu hafa aflétt óvissustigi Almannavarna vegna netárása sem tengdust leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óvissustigið tók gildi þriðjudaginn 16. maí síðastliðinn.

Leiðtogafundi Evrópuráðsins er formlega lokið og hefur greining CERT-IS leitt í ljós að umfang árásatilrauna hefur minnkað umtalsvert í kjölfarið. Varnir hafa virkað vel og ekkert raunatvik hefur komið upp síðastliðinn sólahring. Vísbendingar eru um að hópurinn sem stóð að netárásum síðustu daga hafi beint athygli sinni út fyrir íslenska netumdæmið.

Embætti ríkislögreglustjóra og netöryggissveitin CERT-IS höfðu í aðdraganda fundarins starfað þétt saman, óhætt er að segja að sú samvinna hafi skilað góðum árangri.

Almannavarnir hvetja sem fyrr, almenning að gæta fyllsta öryggis í netheimum, auk þess eru rekstraraðilar mikilvægra innviða hvattir til að hafa augun áfram opin og tilkynna ef óvæntar netárásir koma upp.