Óvissustig Almannavarna vegna Skaftárhlaups aflýst

Í ljósi þess að Skaftá hefur náð eðlilegu rennsli og úrkoma helgarinnar er liðin hjá, hefur Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, aflýst óvissustigi Almannavarna sem sett var á 28. ágúst sl. vegna hlaups í Skaftá.

Óvissustig Almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.