Óvissustig vegna aukinnar virkni í Öræfajökli

Vegna vísbendinga um aukna virkni í Öræfajökli hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, lýst yfir óvissustigi almannavarna.  Jarðskjálftavirkni hefur farið stigvaxandi í Öræfajökli síðasta árið og tilkynningar um jarðhitalykt bárust í gær.  Nú undir kvöldið var staðfest að breytingar á yfirborði Öræfajökuls hafa orðið.

Engin merki eru um gosóra eða yfirvofandi eldgos.

Landhelgisgæslan mun fljúga með vísindamenn til að kanna aðstæður og taka sýni í fyrramálið.

Lögreglan á Suðurlandi verður með vakt á þjóðveginum við Kvíá í nótt en sú ráðstöfun verður endurskoðuð eftir flug vísindamanna um svæðið.

Veðurstofan hefur aukið vöktun á svæðinu og fylgist vel með í samráði við jarðvísindamenn Háskóla Íslands og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Frekari mælingar verða gerðar í og við jökulinn á næstu dögum sem gefa vonandi betri mynd af atburðarrásinni sem er í gangi.

Óvissustig almannavarna er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað

Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.