Óvissustig vegna aurskriðu á Seyðisfirði

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands lýsa yfir óvissustigi almannavarna á Seyðisfirði eftir að tvær aurskriður féllu úr Botnum annarsvegar niður í Botnahlíð og á Austurveg.

Önnur skriðan féll á hús en samkvæmt fyrstu upplýsingum eru skemmdir sagðar óverulegar. Þá hafa engar upplýsingar borist um slys á fólki.

Aðgerðarstjórn hefur verið virkjuð á svæðinu. Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma hluta af svæði svæði C á Seyðisfirði. Rýma þarf eða vara íbúa við að hafast ekki við fjallsmegin í húsum á C-svæði undir Botnum frá Dagmálalæk að Búðará. Einnig B- og C-svæði ofan Gamla Austurvegar og Hafnargötu, ofan götunnar. Rauði kross Íslands hefur opnað fjöldahjálparstöð í Herðubreið á Seyðisfirði.

Skriðuhætta hefur verið á Austurlandi vegna mikilla rigninga undanfarna daga. Jörð er orðin vatnsmettuð eftir rigningu, snjóbráð og hlýinda síðustu daga.