Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi frá klukkan 08:00 10. desember.

Samkvæmt Veðurstofunni er spáð mikilli snjókomu í mjög hvassri NA- og síðan N-átt á svæðinu. Búast má við því að snjóflóðahætta geti skapast í fjalllendi í Skagafirði, Tröllaskaga og austur fyrir Eyjafjörð. Viðbúið er að snjóflóð falli í bröttum brekkum sem safna í sig snjó í NA- og N-áttum, einkum þar sem snjór safnast í gil. Fylgst verður með snjóflóðahættu í byggð, en reistar hafa verið varnir í þéttbýli þar sem hættan var áður mest, t.d. á Siglufirði.