Óvissustigi aflétt vegna jökulhlaups frá Grímsvötnum.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, aflýsir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups frá Grímsvötnum.  Mest allt vatn hefur nú runnið úr Grímsvötnum og náði hlaupið hámarki 5. desember.  Rennsli í Gígjukvísl nálgast nú eðlilegt vetrarrennsli.  Samfara hlaupinu myndaðist 60 m djúpur og 500-600 m breiður sigketill suðaustur af Grímsfjalli auk þess sem 1300 m löng og 600 m breið sigdæld myndaðist austur af Grímsfjalli.  Sprungur hafa því myndast á ferðaleið austur af Grímsfjalli og er varað við ferðum á þeim slóðum.