Óvissustigi almannavarna aflýst vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum aflýsir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall sem hófst 21. desember 2021.  Hrinan var snörp og mældust um 90 jarðskjálftar yfir M 3.0 að stærð og 12 yfir M 4.0 að stærð.  Samhliða jarðskjálftunum mældust landbreytingar með GPS og gervitunglamyndum sem benda til þess að kvika hafi leitaði til yfirborðs í formi gangs sem hafi náð á um 1.5 km dýpi.  Litlar landbreytingar hafa mælst frá 28. desember sem eru merki um að kvika hafi ekki leitað ofar síðan þá.

Í ljósi atburða síðustu misserin er fylgst vel með þróuninni á Reykjanesskaga og almannavarnastig endurmetið reglulega með tilliti til jarðskjálftavirkni og landbreytinga.  Aðstæður geta breyst hratt og því er enn vakin athygli á því að varhugavert getur verið að fara inn á hraunbreiðuna við Geldingadali og að gígum. Töluverðan tíma getur tekið fyrir hraun að kólna og ennþá er yfirborð og gígar óstöðugir, hrun getur orðið eða sprungur geta myndast.  Auk þess má búast við að afgösun hraunsins haldi áfram um einhvern tíma og hættulegar aðstæður myndast þar sem gas getur safnast saman.