Óvissustigi Almannavarna vegna jökulshlaups úr Grímsvötnum aflýst

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurlandi, aflýsir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Grímsvötnum. Óvissustigi var lýst yfir 11. janúar síðastliðinn en þá var íshellan í Grímsvötnum tekin að lækka. Frá því að hlaupið náði hámarki í Gígjukvísl hefur vatnshæð þar farið lækkandi og er nú orðin svipuð og hún var fyrir hlaup. Hlaupórói sem mældist á jarðskjálftamæli á Grímsfjalli hefur líka lækkað og er nú kominn niður í eðlilegt horf.

Þekkt er að sigkatlar hafa myndast á svæðinu í síðustu hlaupum og því er ferðafólki ráðlagt að vera ekki á ferð um þessar slóðir. Sjá frétt á vef Veðurstofunnar.