Óvissustigi Almannavarna vegna veðurs aflýst

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra aflýsir óvissustigi Almannavarna í fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem gekk yfir í dag.

Appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar hafa verið teknar af en gular viðvaranir eru í gildi víða um land. Samhæfingarstöð Almannavarna hefur lokið störfum en vegfarendur eru áfram beðnir að fara varlega þar sem áfram má búast við vindkviðum.

Veðurstofan hefur einnig aflýst óvissustigi sínu vegna hættu á snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum.

Inn á umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og inn á vedur.is er eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.