Óvissustigi vegna landriss í Öskju aflýst

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur aflýst óvissustigi vegna landriss í Öskju eftir að nýjustu mælingar sýna að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið.

Nýjustu mælingar benda til þess að landrisi í Öskju, sem hófst árið 2021, sé nú lokið. Fyrstu merki eru um að land á svæðinu sé farið að síga á ný og bæði gasmælingar og skjálftavirkni benda til eðlilegs ástands.

Niðurstöðurnar byggja á vettvangsvinnu vísindamanna Veðurstofu Íslands og Háskólans í Gautaborg sem lauk í síðustu viku. Þar voru framkvæmdar mælingar á aflögun lands og gasi á Öskjusvæðinu. Mælingarnar sýna að landrisið hefur stöðvast og smávægilegt landsig mælist nú á svæðinu. Jafnframt hafa engar breytingar mælst á samsetningu gass í eystri hluta Öskju miðað við fyrri ár og skjálftavirkni er lítil og í samræmi við þekkta bakgrunnsvirkni.

Í ljósi þessara niðurstaðna er talið að þeim óróa sem einkennt hefur Öskju undanfarin ár sé lokið. Viðvörunarstig eldstöðvarinnar hefur því verið fært aftur á stig 0 sem táknar eðlilegt bakgrunnsástand.

Askja er virk eldstöð á Norðurgosbeltinu. Þar hófst umfangsmikið landris árið 2021 og hefur land á svæðinu risið um rúmlega 60 sentímetra frá þeim tíma. Nýjustu mælingar benda hins vegar til þess að þeirri þróun sé nú lokið.

Þrátt fyrir að óvissustigi hafi verið aflýst verður áfram fylgst með þróun mála í Öskju. Líkt og áður geta gufusprengingar orðið innan jarðhitasvæða í Öskju. Fluglitakóði Öskju er áfram grænn.

Sjá frétt á vef Veðurstofunnar