Píparasveit Almannavarna halda áfram störfum á Suðurnesjum

Þar sem heitt vatn berst á mismunandi hraða inn í hverfi á Suðurnesjum mun Píparasveit Almannavarna halda áfram að styðja við íbúa Suðurnesja.  

Áfram verður því hægt að hringja í þjónustuver HS Veitna í síma 422-5200 eða á netfangið hsveitur@hsveitur.is.