Rýmingar á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi

  • Óvissustigi almannavarna vegna hættu á skriðuföllum er í gildi á Austurlandi.
  • Neyðarstig almannavarna á Seyðisfirði –Rýming í gildi og umferð óheimil.
  • Hættustig almannavarna á Eskifirði – Rýming að hluta í gildi.

Seyðisfjörður:

Ákveðið hefur verið að óheft umferð um Seyðisfjörð verði óheimil í dag. Dagurinn verður nýttur til þess að meta umfang skriðufalla síðustu daga auk hættu á frekari skriðuföllum. Auk þess þarf að meta umfang tjóns og stöðu mikilvægra innviða á Seyðisfirði.  Það verður gert undir  eftirliti lögreglu með hjálp björgunarsveita.

Neyðarstig almannavarna er enn í gildi á Seyðisfirði eftir að aurskriður féllu á bæinn í gær. Bærinn var rýmdur og voru íbúar og aðrir fluttir í fjöldahjálparstöð á Egilsstöðum. Minnst ellefu hús hafa orðið fyrir skemmdum. Frekara tjón verður metið í dag.

Ein skriða féll innan við Búðará snemma í morgun en ekki er talið að hún hafi valdið miklum skemmdum. Sú skriða gefur vísbendingar um að enn sé óstöðugleiki í jarðlögum.

Eskifjörður:

Ákveðið hefur verið að halda rýmingum á Eskifirði í dag. Hús við nokkrar götur voru rýmd síðdegis í gær þegar í ljós kom að sprungur í gamla Oddskarðsveginum, ofan við bæinn, höfðu stækkað. Sérfræðingar frá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Fjarðabyggð meta aðstæður á vettvangi í dag. Vonast er til að niðurstaða liggi fyrir fljótlega eftir hádegi. 

Næsta tilkynning vegna rýmingar þar verður send út á milli klukkan 13 og 14 í dag.

English translation

Polish translation

Myndirnar eru frá ríkislögreglustjóra vettvangi á Seyðisfirði í morgun.