Frekari rýmingar í Neskaupstað

ENGLISH BELOW

Frá lögreglunni á Austurlandi:

Veðurstofan hefur vegna ofanflóðahættu ákveðið frekari rýmingu á Neskaupsstað. Um er að ræða efstu húsaraðir á reitum 8 – 11 – 14 (við Urðarteig, Blómsturvelli, og Víðimýri) að undanskildum húsum 2-12a við Urðarteig.

Rýmingin gildir frá klukkan 15:00 og þangað til að önnur tilkynning verður gefin út.

Íbúar eru beðnir um að gefa sig fram í fjöldahjálparstöð í Egilsbúð eða hafa samband í síma 1717 er fyrirhugaður dvalarstaður liggur fyrir.

Fulltrúar aðgerðastjórnar munu fara milli húsa frá klukkan 14 og 15 og aðstoða og veita leiðbeiningar þeim er þurfa.

Further evacuations in Neskaupstaður

The Icelandic Meteorological Office has decided that further evacuations are neccessay in Neskaupstaður due to avalanche hazards. The buildings that need to be evacuated are the top row of houses on evacuation areas no. 8, no. 11 and no. 14 (along the streets Urðarteigur, Blómsturvellir and Víðimýri) excluding the houses Urðarteigur 2-12a.

This evacuation takes effect at 1500 hours March 30th 2023 and stays in effect until further notice.

Inhabitants in these buildings are asked to report at the Mass Care Centre in Egilsbúð or call the Red Cross at tel. 1717.

Civil Protection personnel will go door to door from 1400 to 1500 hours for assistance and instruction for those who are in need for such assistance.