Rýmri heimildir íbúa Grindavíkur

Í dag, fimmtudaginn 23. nóvember, breyttust reglur varðandi veru íbúa í Grindavík. Íbúum er nú heimilt að fara inn í Grindavík til að sækja verðmæti og huga að eigum sínum frá kl. 9:00 – 16:00 en þá eiga allir að yfirgefa bæinn.  Metið verður daglega hvort svigrúm verði til opnunar á ný.

Hættustig Almannavarna er í gildi og líkur á fyrirvaralausu eldgosi eru taldar minni en áður var og svigrúm til þess að bregðast við eldgosi eru taldar rýmri en áður. Öryggi íbúa í Grindavík er haft í fyrirrúmi og því gæti þurft að rýma bæinn með mjög stuttum fyrirvara.

Breytingar sem taka í gildi á morgun, föstudaginn 24. nóvember eru þær að bílar sem krefjast almennra ökuréttinda B verða leyfðir, sendibílar og aðrir bílar sem eru allt að 3.5 tonn í heildarþyngd. Einnig verða kerrur leyfðar í íbúðahverfum.

Tilhögun verður áfram eftirfarandi hætti:

  • Íbúar í Grindavík beðnir um að skrá sig á www.island.is og fá þar heimild til þess að fara inn. Heimildin mun berast fljótt.
  • Þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfa ekki að sækja um aftur.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins og þeim sem aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur er lokaður, en hægt er að aka Nesveg og Suðurstrandarveg.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum, hámark 1 bíll á hvert heimili. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum.
  • Áfram eru gámabílar, gámar eða gámaflutningatæki, stórir sendibílar (yfir 3.5 tonn), ekki leyfðir.
  • Hvorki er virkt frárennsli né rennandi vatn þannig að ekki hægt að nota salerni í húsum í Grindavík.  Salerni eru í bænum við grunnskólana tvo.  
  • Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum.
  • Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.
  • Þeim íbúum í skemmdum húsum sem þegar hafa fengið leyfi er heimilt að flytja búslóðir sínar burt.
  • Mikilvægt er að hvert og eitt heimili skrái hjá sér þau verðmæti sem tekin eru úr húsunum og hafi samband við sitt tryggingafélags vegna þess.
  • Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni.
  • Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi.
  • Íbúar eru hvattir til þess að ganga um og frá húsum sínum með þeim hætti að komið geti til rýminga með stuttum fyrirvara.
  • Mikilvægt er að þau sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila á öllum stundum.
  • Athygli er vakin á að á sama tíma og íbúar fá aðgang er unnið að öðrum verkefnum í bænum.
  • Fjölmiðlum er heimilaður aðgangur.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar þeyta sírenum og ljósmerkjum á ökutækjum og þýðir það tafarlaus rýming á svæðinu samkvæmt rýmingaráætlun. Rýmingarleiðir út bænum eru eftir Suðurstrandavegi eða Nesvegi.