Samkomubann vegna COVID-19 tekur gildi 16. mars 2020

Ríkisstjórn Íslands kynnti á blaðamannafundi í morgun samkomubann vegna COVID-19, sem gildir frá og með mánudeginum 16. mars kl 00:01, og gildir það í fjórar vikur, til og með 13. apríl kl. 00:01. Með samkomubanni er átt við skipulagða viðburði þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Við öll minni mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum og að aðgengi að handþvotti og handspritti sé gott

Skipulagðir viðburðir sem bannið nær til eru til dæmis:

  • Ráðstefnur, málþing, fundir og hliðstæðir viðburðir.
  • Skemmtanir, s.s. tónleikar, leiksýningar, bíósýningar, íþróttaviðburðir og einkasamkvæmi.
  • Kirkjuathafnir hvers konar, s.s. vegna útfara, giftinga, ferminga og annarra trúarsamkoma.

Að auki þurfa allir aðrir staðir að tryggja að ekki séu á sama tíma fleiri en 100 manns inni í sama rými. Þetta á t.d. við um vinnustaði, veitingastaði, mötuneyti, kaffihús, skemmtistaði, verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, og söfn. Þessi mörk eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilegra starfsemi. Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi þar sem færri en 100 eru samankomnir, skal eins og mögulegt er skipuleggja rými þannig að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga.

Hvernig verður skólahaldi háttað?
Töluverðar takmarkanir eru á skólahaldi á meðan á samkomubanninu stendur. Í mörgum tilfellum geta nemendur ekki mætt í skólabyggingar heldur stunda nám í fjarkennslu. Í öðrum tilfellum eru strangar kröfur settar um fjölda og nálægð nemenda.  Takmarkanir gilda um leikskóla, grunnskóla, framhaldskóla en einnig aðrar menntastofnanir, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og íþróttastarf

  • Framhaldsskólum og háskólum verður lokað og kennsla fer fram í fjarkennslu eins og hægt er.
  • Grunnskólar mega hafa kennslu í skólabyggingum ef þeir tryggja að ekki séu fleiri en 20 nemendur í sömu kennslustofu og að nemendurnir blandist ekki milli hópa, til dæmis í mötuneyti eða frímínútum. Eins þarf að þrífa eða sótthreinsa skólabyggingarnar eftir hvern dag.
  • Leikskólar mega hafa opið og halda uppi leikskólastarfi ef þeir tryggja að börn séu í sem minnstum hópum og aðskilin eins og kostur er. Eins þarf að þrífa eða sótthreinsa leikskólabyggingarnar eftir hvern dag.

Þessar takmarkanir verða í stöðugu endurmati þannig að hægt sé að draga úr þeim eða þá lengja tímabilið sem þær gilda ef þörf þykir. Samkomubannið nær ekki til alþjóðaflugvalla eða alþjóðahafna, flugvéla eða skipa. Hvatt er til þess að sóttvarnaráðstafanir verði efldar og rekstaraðilar grípa til ítrustu ráðstafana til að minnka möguleika á smiti.

Á vefsíðunni http://www.covid.is er hægt að nálgast frekari upplýsingar.