Seinkun á heitu vatni til Suðurnesja

Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá HS Orku verður seinkun á því að hægt verði að hleypa heitu vatni á nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sem hraun flæddi yfir í gær. Vinnan við nýju lögnina hefur gengið vel en tafist örlítið sem veldur seinkuninni. Nú er stemmt að því að hægt verði að hleypa heitu vatni á lögnina á miðnætti í kvöld.

Til upplýsinga getur tekið allt að tvo sólarhringa til að ná fullum þrýstingi á lögnina og því þarf fólk að fara sparlega með vatnið áfram eftir að búið er að hleypa heitu vatni aftur á í kvöld.

Almannavarnir hvetja íbúa Suðurnesja að fylgjast vel með fréttum og leiðbeiningum vegna heitavatnsleysis sem má finna hér.