Seyðisfjörður: Hreinsunarstarf og vöktun

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:

Hreinsunarstarf:
Í undirbúningi er að koma fyrir nýjum veitustokk fyrir Búðará við Hafnargötu og sömuleiðis að koma fyrir ræsi undir Hafnargötu fyrir nýjan farveg frá varnargörðunum við slippsvæðið, þar er hönnun komin vel á veg og unnin í samstarfi við Vegagerðina.  Í Botnahlíð er, eftir samtal við íbúa, einnig í undirbúningi að koma fyrir veituskurði og varnarkanti fyrir ystu húsin sem verður í líkingu við þær varnir sem þar hefur verið komið fyrir.

Veðurfar og vöktun:
Á Seyðisfirði var uppsöfnuð úrkoma rúmlega 100 mm frá laugardegi fram á miðvikudag sem er sú mesta sem komið hefur frá skriðuhrinunni í desember. Auk rigningar var einnig leysing. Mælitæki til þess að vakta aurskriðuhættu í hlíðinni, sem komið hefur verið fyrir á undanförnum vikum, reyndust vel. Mælingar í borholum í Neðri-Botnum sýndu nokkuð hraða hækkun á vatnsborði á sunnudag og varð vatnshæð svipuð og hún var í lok desember. Nú er vatnshæð farin að lækka aftur. Mælingar á hreyfingu jarðlaga með alstöð og sjálfvirkum GPS mælum sýna enga markverða hreyfingu. Það er góðs viti að þetta veður skuli ekki hafa valdið óstöðugleika í jarðlögum hlíðarinnar og þess vegna er ekki reiknað með því að það þurfi að grípa til sambærilegra rýminga á Seyðisfirði nema úrkoma og leysing verði nokkru meiri en nú varð. 

Þjónustumiðstöð almannavarna:
Þjónustumiðstöð almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er með opið í Herðubreið alla virka daga kl. 11-17 og svarar starfsfólk þar fyrirspurnum íbúa og annarra tengdum aurskriðunum. Jafnframt er boðið upp á sálrænan stuðning og alltaf heitt á könnunni. Upplýsingamiðlun er í samvinnu Múlaþings og Þjónustumiðstöðvar. Spurningar sem hafa borist í kjölfar íbúafunda og til þjónustumiðstöðvar eru settar með svörum á vef Múlaþings jafnóðum og þær berast. Þær eru einnig þýddar á ensku og pólsku. Aurskriður í Seyðisfirði / Landslides in Seyðisfjörður | Múlaþing (mulathing.is)