Skíðasvæðið Ischgl í Austurríki í hóp skilgreindra áhættusvæða

Sóttvarnarlæknir ræður nú frá ónauðsynlegum ferðum til Kína, Suður-Kóreu, Írans, Ítalíu og skíðasvæðisins Ischgl í Austurríki.

Skíðasvæðið Ischgl í Austurríki hefur þar með bæst í hóp skilgreindra áhættusvæða vegna COVID-19 veirunnar.

Það þýðir að allir sem hafa verið á skíðasvæðinu Ischgl frá 29. febrúar eru beðnir um að fara í 14 daga sóttkví og tilkynna það til sinnar heilsugæslu. Ef viðkomandi finnur fyrir flensulíkum einkennum á að hafa samband við Læknavaktina í síma 1700.   

Allir þeir sem verið hafa á svæðinu frá sama tíma og eru auk þess með einkenni eiga að hafa samband í síma 1700 og  fara eftir leiðbeiningum þaðan um að fara í sýnatöku. Þeir sem hafa einkenni eiga að nota grímur og gæta allrar mögulegrar smitvarúðar.

Sjá nánari upplýsingar um sóttkví í heimahúsi.

Gagnagrunnur fyrir Íslendinga erlendis
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins opnað gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem óska eftir að vera á skráðir hjá utanríkisráðuneytinu og upplýstir um ferðaráð vegna COVID-19 veirunnar á meðan á dvöl þeirra stendur.

Einkenni nýju kórónaveirunnar (COVID-19)

Nýja kórónaveiran (COVID-19) hagar sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru svipuð og smitleiðir áþekkar. Einkenni eru helst hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Veiran getur valdið alvarlegum veikindum hjá þeim sem veikir eru fyrir lýsir það sér með sýkingum í neðri öndunarfærum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.-8. degi veikinda.