Slæm veðurspá fyrir gosstöðvarnar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka fyrir umferð um Suðurstrandarveg á vegarkafla á milli Krísuvíkurvegamóta og Hrauns frá klukkan 13:00 í dag.  Umferð sem á brýnt erindi á þessari leið verður hleypt um veginn.  Gönguleið að eldgosinu í Geldingadölum verður einnig lokað vegna veðurs.   Framundan er mikið hvassviðri og stórhríð og því ekkert útivistarveður á svæðinu.

Veðurspá frá Veðurstofu Íslands:
Austanáttin hefur mælst um 17 m/s við gosstöðvarnar í morgun, það er þurrt og frostið um 7 gráður. Í dag hvessir enn frekar, og undir kvöld er útlit fyrir austan 20-25 m/s og snjókomu og skafrenning með lélegu skyggni og minnkandi frosti. Sem sagt stórhríð og ekkert útivistarveður.  Lægir seint í kvöld, og í nótt og fyrramálið verða austan 5-10 m/s og él á svæðinu, með hita nálægt frostmarki. Um og eftir hádegi á morgun lægir svo enn frekar og áttin verður breytileg.  Annað kvöld snýst svo í norðan 10-15 m/s og styttir upp og kólnar.   Áfram norðan 10-15 og þurrt á mánudag, en síðdegis snýst í minnkandi norðaustanátt. Vægt frost.