Slæmt veður framundan á öllu landinu – Óvissustig Almannavarna.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á öllu landinu lýsa yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs sem framundan er.  

Fyrsta appelsínugula viðvörun Veðurstofunnar tekur gildi kl. 6:00 í fyrramálið. Góðu fréttirnar eru að veðrið fer hratt yfir og síðasta appelsínugula viðvörunin rennur úr gildi um hádegisbilið.

Almannavarnir biðla til almennings um að ganga frá lausamunum til að fyrirbyggja foktjón. Einnig er mikilvægt að byggingarfyrirtæki hugi að sínum svæðum og geri viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir og draga úr tjóni.  Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á þeim svæðum þar sem veðrið er verst hverju sinni. Fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Samráðsfundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra var haldinn klukkan 16:00 í dag þar sem farið var yfir komandi veður, möguleg áhrif og viðbragð við þeim.  Ákveðið hefur verið að virkja Samhæfingarstöð Almannavarna klukkan 5:00 í fyrramálið.

Inn á umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og inn á vedur.is er eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.