Stormur og rok á landinu í dag

Hér með er viðvörun frá Veðurstofunni með uppfærðri veðurspá:
Búist er við stormi eða roki (meðalvindur 20-28 m/s) á landinu í dag og á Vestfjörðum á morgun.
Veðurspáinn fyrir næstu 36 klukkustundir er svohljóðandi:
Í dag (miðvikudag ) má búast við austan 20-28 m/s með snjókomu S- og V-lands, en síðar slyddu eða rigningu við ströndina, 18-28 síðdegis, hvassast við S-ströndina. Hægari og úrkomulítið á N- og A-landi í fyrstu, en síðan 18-23 þar og snjókoma eða skafrenningur. Dregur verulega úr vindi og úrkomu í kvöld og nótt, en áfram stormur eða rok á Vestfjörðum. Norðan 20-28 m/s og snjókoma eða éljagangur á vestast á landinu á morgun, hvassast á Vestfjörðum, en mun hægari suðlæg eða breytileg átt og dálítil él eystra. Heldur hlýnandi veður í bili, en kólnar aftur á morgun. Norðvestan hvassviðri eða stormur víða um land annað kvöld.
Athugasemdir veðurfræðings
Litlu má muna að að norðan strengurinn nái betur inná land á morgun fimmtudag með enn meiri vind og geta spár, og þar af leiðandi veður breyst með stuttum fyrirvara.
Frett_25022015_1.jpgFrett_25022015_2.jpg

Spá fyrir vind kl. 16 miðvikudaginn 25. febrúar og kl. 10 fimmtudaginn 26 febrúar. Rauðir og gulbrúnir litir tákna hættulegasta vindinn. Vindaspá þessi er reiknuð af Veðurstofu Íslands með Harmonie veðurlíkaninu. Spáin uppfærist fjórum sinnum á sólarhring og má alltaf fletta nýjustu kortunum á slóðinni:
http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/#teg=vindur