Tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum – 22.mars 2024

Fréttatilkynning til fjölmiðla.

Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra Skógfells laugardagskvöldið 16. mars sl. eftir skammvinna skjálftavirkni.  Þótt dregið hafi úr virkni og hraunrennsli frá upphafi goss virðist eldvirkni nokkuð stöðug.  Gosið hefur nú sjö sinnum frá 19. mars 2021 og er þetta eldgos það fjórða í röðinni á jafnmörgum mánuðum. 

Fyrirvari viðbragðsaðila nú var enginn en vel tókst til með að rýma bæði Grindavík og eins Bláa lónið þar sem fjöldi gesta var samankominn.   

Það er mat lögreglustjóra að ógn stafi af hraunrennsli og gasmengun í Grindavík og inn í Svartsengi við núverandi aðstæður.  Þá er fylgst vel með hraunrennsli fyrir ofan Suðurstrandarveg sem ógnar ekki veginum enn sem komið er.   Fylgst er vel með mengun inn á merktu hættusvæði.    Hætta er talin á að loftmengun geti ógnað heilsu manna inn á merktu hættusvæði næstu daga.  Þá hefur lögregla til rannsóknar atvik inn við Bláa Lónið þar sem starfsmaður þar þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi vegna gasmengunar.   Vinnueftirlitið hefur það atvik jafnframt til skoðunar.  Við breytilega vindátt getur vart talist forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa Lóninu á meðan eldgos er enn í gangi og á það jafnframt við um aðra starfsemi inn á hættumatskorti Veðurstofu Íslands. 

Lögreglustjóri biðlar til íbúa Grindavíkur svo og aðra sem eiga hagsmuna að gæta inn á merktu hættusvæði að dvelja þar ekki.  Þar geta skapast aðstæður sem geta verið lífshættulegar mönnum.  Fréttatilkynningin verður uppfærð nk. mánudag.

Þeir sem eiga erindi inn í Grindavík er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/    

Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga:

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara.   Hætta er á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum.  Hætta er talin mikil á gasmengun og hraunflæði. 
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. 

Lokunarpóstar eru við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar, Nesveg og Suðurstrandarveg.  Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg og Suðurstrandarveg.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangtLögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.    

Framangreint fyrirkomulag verður tekið til endurskoðunar mánudaginn 25. mars eða fyrr eftir atvikum.