Tilkynning um virkjun SMS-skilaboða vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesi

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja SMS-skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði á Reykjanesskaganum vegna jarðskjálftahrinurnar sem hófst að kvöldi 4. júlí sl.  Er þetta gert bæði vegna grjóthruns svæðinu og eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara. Komi til eldgos verður textaskilaboðum breytt í beina aðvörun til þeirra sem eru á umræddu svæði.

Ekki er hægt að útiloka að SMS-skilaboðin berist til fólks aðeins utan við skilgreint svæði og er almenningur beðinn um að hafa það í huga.

Í skilaboðunum er varað við ferðum á svæðinu vegna grjóthruns og mögulegs eldgoss.

Skilaboðin eru einungis send á ensku. Ástæðan er sú að markhópurinn er erlent ferðafólk sem hefur ekki jafn gott aðgengi og aðrir að upplýsingum vegna jarðskjálftahrinurnar sem hófst í gærkvöldi.

Skilaboðin: Police: Reykjanes peninsula – earthquakes! Increased seismic activity in the area. Stay away from slopes and cliffs due to danger of rockfall and landslides.  A volcanic eruption might start with short notice