Tilslakanir á samkomubanni

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns í dag 4. maí og verða framhalds- og háskóla opnaðir og ýmsir þjónustuveitendur geta tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Í auglýsingunni felst að reglur um fjöldatakmörk og um tveggja metra nálægðarmörk munu frá gildistöku hennar ekki eiga við um nemendur í starfsemi leik- og grunnskóla. Þannig verður því unnt að halda óskertri kennslu og vistun barna. Sama á við varðandi börnin í starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og annarri lögbundinni þjónustu á leik- og grunnskólastigi. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar almenningi en skólasundkennsla verður heimil.

Áform stjórnvalda um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi voru kynntar á fréttamannafundi forsætis- heilbrigðis- og dómsmálaráðherra 14. apríl síðastliðinn. Með auglýsingunni sem birt var í dag eru breytingarnar nákvæmlega útfærðar. Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 19. apríl 2020, sem er viðbót við fyrri minnisblöð hans til heilbrigðisráðherra sem kynnt voru 14. apríl, er gott yfirlit yfir helstu breytingar sem auglýsingin hefur í för með sér varðandi skólastarf á öllum skólastigum, á íþróttastarf barna og fullorðinna o.fl.

Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að þegar líður að lokum maí verði skoðaðir möguleikar á að aflétta enn frekar takmörkunum á samkomum. Að því gefnu að ekkert standi slíkum breytingum fyrir þrifum verði stefnt að því að færa fjöldatakmarkanir úr 50 í 100 manns, opna sundlaugar og líkamsræktarstöðvar o.fl.

Talsverðar breytingar verða á íþróttastarfi frá og með 4. maí og má nálgast frekari upplýsingar á vefsíðunni http://umfi.is/

Íþrótta- og æskulýðsstarf frá og með 4. maí fyrir börn 16 ára og yngri:
Frá 4. maí falla alveg niður takmarkanir hjá börnum og ungmennum 16 ára og yngri í leik- og grunnskólum og við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf. Sömuleiðis mun tveggja metra nálægðarmörk ekki eiga við um þennan aldurshóp. 

  • Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.
  • Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.
  • Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.
    Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.
  • Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.
  • Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.

Íþróttastarf  17 ára og eldri

  • Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll (2.000 m²).
  • Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll (800 m²).
  • Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.
  • Hvatt verði til að tveggjametra nándarreglan verði virt.
  • Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda.
  • Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.
  • Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
  • Sundlaugar verði lokaðar almenningi.